Wednesday, April 27, 2011

Cape Town

Cape Town er kul borg!

Eg er buin ad komast ad tvi ad mer getur fundist skemmtilegt i storborgum (fyrir utan Paris... og Cape Town, finnst mer leidinlegt i storborgum) 
Cape Town er odruvisi borg,  umkringd fjollum sem gerir hana hlylega,  manni lidur ekki eins og madur se i mengunarskyi... og thad er i rauninni aldrei allt of mikid af folki ad labba og allir voda stressadir.. eins og td. i London.   Og tho thad se einn adal vegur, Long Street, tha er thetta eins og morg hverfi og eitthvad skemmtilegt a ollum stodunum... svipad og Paris.
Eg hafdi heyrt ad Cape Town vaeri haettuleg borg, en eftir ad hafa tekid nokkra gongutura finnst mer hun bara mjog hlyleg.  Hun er litrik og er buin ad finna oliklegustu stodum litil kul kaffihus, gamaldags litid biohus, otrulega kul tonlistarbud og fleyra.   Svo er mjog fallegur stor gardur her og i endanum a honum stort listasafn sem eg for a i dag. 
Oll sofnin sem eg er buin ad fara a i ferdinni (sem eru reyndar bara 3) eru buin ad fjalla um adskilnadinn milli svartra og hvita, og hvernig svartir hofdu thad slaemt og hvitir gott. 
Svo labba eg ut og se ad thad er enntha i dag mikill munur a velgengni folks sem fer einfaldlega eftir hudlit manna, sem er svo skritid.  Eg hef aldrei sed hvitann mann betla, eda vera ad vinna vid ad passa bila, eda vera ad vinna vid ad thrifa gotuna eda reyna ad fa folk i litlu mini bussana.  Thad er allt svart folk, thad er eins og thad se omogulegt fyrir hvitt folk her ad lenda i thessum stodum, verst borgudu storfum og vera ad betla.  Lika i fallega stora gardinum ser madur heimilislaust folk sofa a grasinu, og thad er allt svart folk.

Aetli hvita folkid fai meiri sjensa, entha i dag?  Thad hlytur ad vera...  thad tekur greinilega langann langann tima ad breyta hlutum eins og thessum, tvi thad er ekki enntha ordid jafnt rettlaeti milli svartra og hvita.  Eitthvad sem hefur komid mer nokkud a ovart.

En snuum okkur aftur ad skemmtilegu borginni.  Her er eg eiginlega buin ad vera ad dunda mer, er ekki buin ad hafa neitt plan i rauninni.  Vakna a morgnanna og fer ut ad labba.  Labba og labba og se hluti.  Svo finn eg a endanum leidina aftur a hostelid.  I dag labbadi eg einkar mikid, for med fotin min i tvottahreinsun, sa fullt af uti morkudum, keypti mer malverk, for a listasafn, i gardinn, svo sa eg mjog kul fatabud og keypti mer kjol og buxur vij, fyrstu fatakaupin.
I byrjununni a longu labbinu minu kom einn kall ad mer og bad mig um ad kaupa braud handa ser i budinni...  eg hugsadi, hann er fyrsti sem hefur ekki bara bedid um pening heldur hann bad um mat.  Thannig eg gerdi thad.  Svo thegar eg var komin lengra a leid var onnur kona sem bad mig um pening og sagdi mer langa sogu um mommu sina og pabba og um hana og eg trudi henni i alvoru og gaf henni pening... en thad sem er sorglegt er ad madur getur bara ekki verid ad standa i tvi ad gefa ollu thessu folki pening.  Thad komu orugglega 10 fleyri skipti thar sem einhver var ad betla og eg sagdi bara sorry og labbadi i burtu.  Thetta er odruvisi en eg hef kynnst adur, folkid situr ekki og betlar.  Thad labbar upp ad manni og horfir beint i augu manns og segir please kind lady please! og fer ad segja manni ad thad se ekki buid ad borda neitt...    
Og mer finnst thad mjog erfitt... en i leidinni veit eg ekki hvad eg get gert til ad hjalpa theim.  Eg veit ad a morgun verda thau aftur a gotunum ad labba upp ad folki og betla.

Thetta er eitthvad sem eg er buin ad vera ad hugsa mikid um.. og mer finnst thad mjog skritid.   Madur finnur aldrei fyrir thessu a Islandi og eg hef oft hugsad med mer va hvad thad vaeri leidinlegt ad bua a stad thar sem folk vaeri alltaf ad betla.  Madur myndi osjalfratt bara byrja ad ignora thad og finnast thad einfaldlega pirrandi, og tha myndi manni a endanum lida illa yfir tvi utaftvi ad thau eru folk alveg eins og eg..

hmm, eg er ordin threytt.  Aetla ad fara upp i rum ad lesa bokina mina "The boy in the striped pajamas" sem eer mjog god bok!  og fara ad sofa :)    a morgun fer eg i annad hverfi (breyti um hostel, er buin ad vera i midbaenum) sem er svona hippahverfi thar sem margir artistar bua, spennandi!

Saturday, April 23, 2011

Bulungula

Nuna er eg stodd a stad sem heitir Wilderness, a backpackers sem heitir The Beach House
Kom himgad 4 i nott!  Tvi rutan min var svona 3 timum of sein, stoppadi mjog oft og lengi i einu, svo til ad toppa thad foru their ovart framhja stadnum sem eg atti ad fara ut a! Thannig rutukallarnir letu mig fara i taxa til baka haha, hitti svo annan kall a bensinstod sem var fra hostelinu buinn ad bida eftir mer.. 

Thegar eg var loksins komin hingad var iskalt inn i herberginu sem eg gisti i..  brrr en eg fattadi vist ekki ad thad voru 2 lok svo eg svaf ofana einu og var bara med eitt thunnt lak.  Var ad frjosa i thessa 4 tima sem eg svaf, akvad tha ad eg skyldi fara i heita sturtu en neinei sturtan var eitthvad skritin thannig ad eg fekk svona 1 minutu heita, svo restina kalda sturtu.   Godur morgunn!

En eg aetladi ad segja fra stadnum sem eg er buin ad vera a sidustu 5 daga eda svo.

Thad er litid thorp sem heitir Bulungula. 
Vegurinn thangad er rosalega ojafn malarvegur, thannig madur a klukkutima skopp og bombsur a leidinni i thorpid a medan madur getur sed utum gluggann alla kofana og folkid sem byr thar.   Folkid byr semsagt i svona "huts"  sem eru hringlott hus, gerd ur einhverskonar thjappadri mold og svo malad yfir med hondunum, svo er thakid ur straum.  Thannig thetta eru svona moldar eda strakofar.  Hostelid sem eg var a var samt venjulegt hus, en svo gisti madur i svona hut. 
Sturturnar og klosettin voru thad sem var fyndid vid thetta hostel, en baedi mun throadara en hja restinni af thorpsbuum.  Thau gera tharfir sinar ut i skogi, og bada sig upp ur bala.  Sem hefdi verid gaman en kannski einum of frumstaett.   Hostelid var med svokalladar "rocket showers", thar sem madur stingur klosettpappir inn i ror, setur oliu a pappirinn og kveikir i honum, og thad hitar sturtuna thina i 8 minutur.  Thau safna semsagt regnvatni og fa rafmagn fra solarorku, en thad var lika ein solarorkusturta sem eg profadi ekki.  Thad var alltaf spennandi ad fara i sturtu haha, og heyrdist svaka hatt i henni thegar eldurinn for af stad. 
Klosettin voru svo eins og madur myndi sja venjulega, med setu, en thad var i raun 2 holur.  Fremri holan og aftari holan, i fremri atti madur ad pissa og i aftari atti allt annad ad fara i.  Svo thegar madur var buinn atti madur ad stra 2 bollum af sandi i aftari holuna.   Mjog ahugavert, og lyktin tharna inni var oftast mjog vond.  En thetta er vist besta leidin fyrir natturuna og i rauninni meikar meira sens en ad eyda tonn af vatni til ad skola urgangi i sjoinn, i stadinn fer thetta i einhverja holu i jordinni og verdur ad mold.

En eg gerdi sitt hvad annad tharna en ad fara a klosettid og i sturtu... 
Eg fekk thad skemmtilega tilbod ad vera med sma sjalfbodastarf hja leikskolanum i thorpinu, eftir ad fa ad vita ad eg var med Ukulele med mer og gaeti synt bornunum.  
Thannig eg bjo til sma program: Sagdi theim fra Islandi, sagdi theim fra hljomsveitinni minni og leifdi theim ad heyra log a medan eg utskyrdi hvada hljodfaeri thau vaeru ad heyra, svo spiladi eg fyrir thau a ukulele.  Svo i endan sungu thau fyrir mig afrisk log :).   Thetta var svona halftima program og eg for i gegnum thad med 4 mismunandi hopum.  Thad var mjog gaman ad sja svipinn theirra thegar eg var ad reyna ad utskira nordurljosin, eda ad a sumrin vaeri alltaf bjart og a veturna alltaf dimmt. 
En thad voru otrulega saet born tharna og virkilega flottur leikskoli med storu bokasafni og fullt af leikfongum.  Myndi aldrei halda ad svona leikskoli fyndist i svona frumstaedu thorpi.  En thetta var verkefni sem nokkrar konur byrjudu a adeins fyrir 1 og halfu ari og er buid ad ganga svona otrulega vel.

Stadurinn er rosalega fallegur, fallegasta strond sem eg hef sed, med fullt af klettum og skeljum a.  Eg for a hestbak einn daginn og sa meira af thorpinu, fullt af haedum og mjog strabylt.. thad eru sirka 3 kofar a hverri haed.  Svo for eg i heimsokn til "herbalist" sem safnadi fullt af jurtum og allskonar efni ur skoginum til ad laekna folk vid ymsum sjukdomum, likamlegum eda andlegum.  Og var hann tvi eini "laeknirinn" a svaedinu og naesta sjukrahus 2 klukkutima i burtu. 
Thannig folk atti erfitt ef thad slasadist eda veiktist illa, thar sem thad er flest mjog fataekt.  Sem utskyrir kannski sma hvernig thau foru illa med hundana a svaedinu, en thad er litid a hunda tharna sem omerkilegt dyr.  Og thad for fyrir hjartad a mer ad sja alla horudu hundana sem voru med flaer, einn var meira segja fotbrotinn litill hvolpur og enginn vildi hjalpa honum...

En ja svona eru samfelog olik og madur skilur sumt ekki

Her i Wilderness er vist madur sem byr i helli og safnar skeljum og skreitir hellinn sinn til ad muna Bibliuna! Og eg aetla ad fara ad heimsaekja hann nuna :)

Monday, April 11, 2011

Durban

Eg elska strondina.

Eg for til Durban sidasta fostudag og var fyrst hja fjolskyldu sem eg thekkti eiginlega ekki, vinkona min thekkti brodir konu sem a heima her og hun sagdi ad eg gaeti verid hja theim thannig ad eg akvad ad taka tvi bodi.  Thad var baedi naes en lika mjog spes.
Thau eiga 4 aesta hunda sem vilja alltaf sleikja mann, nokkrar kisur, margar haenur og endur og smahesta ut i gardi!  Svo voru talandi og tistandi pafagaukar inn i eldhusi thannig thetta var eins og ad vera komin i sma dyragard.  Svo thurfti madur eiginlega lika ad komast allt a bil thannig thad var soldid skritid ad vera med folki sem eg thekkti ekki og fara allt sem thau voru ad fara haha.  Eins og a einhvern skatafund sem var mjog fyndin upplifun. 
En thau toku mig ad skoda villt dyr i svona storum natturugardi, sem var gaman.  Sa sebrehesta og giraffa mjog nalaegt oog eg for a markad og svoleidis...

En nuna er eg komin a hostel sem er thaegilegra tvi eg get radid mer sjalf.  For til daemis a strondina i morgun (sem er einn stuttur gongutur!)  og kynntist 2 stelpum!  Mjog skemmtilegt haha, thaer lagu thar med brimbrettin sin og eg akvad ad tala vid thaer tvi mig langar svo ad surfa.  Thannig ad nu eru thaer bunar ad plana ad fara med mig ad surfa, fara med mer ad hjola, og allskonar haha.  Theim fannst mjog gaman ad hafa einhvern til ad syna Durban.  

Er svo buin ad kynnast saenskri stelpu sem er mjog skemmtileg, en hun er samt farin.  Svo buin ad kynnast bandarikjamanni sem er lika mjog skemmtilegur og eyddi storum hluta deginum i ad labba a rutustod stadin fyrir ad taka bara straeto(held eg vaeri ad fa solsting a ad labba svona mikid i hitanum) en honum finnst mjog gaman ad labba mikid og hlaupa.  

Thannig naesta plan er annad hvort ad fara til Mozambique, sem eg er buin ad komast ad eg thurfi ad taka 4 rutur og mun taka sirka 3 daga... thannig er ekki viss um thad lengur.
Eda eg mun fara nidur strondina til Cape Town og stoppa a nokkrum strandarbaejum  :)  sem er soldid heillandi nuna thar sem eg er ordin astfangin af strondinni og langar mjog mikid ad surfa meira.

Thangad til naest!

Wednesday, April 6, 2011

Lifid i Mariannhill

Lifid i Mariannhill er buid ad vera skemmtilegt, skritid, einmannalegt en i leid ahugavert.

Vinnan er skemmtileg, stundum veit eg samt ekki alveg hvad eg a ad gera.  Konurnar tharna fara eftir rutinunni sinni, sumar eru ad sauma toskur og fot,  sumar eru med litlu bornin, sumar elda matinn og sumar fara yfir pappirsvinnu og heimavinnu barnanna.  Eg a eiginlega ad velja hvad eg vil gera...  thannig eg er buin ad profa ad vera med litlu bornunum, sem er skemmtilegt.  Thau eru mjog aest og lifandi, en konan sem er yfir theim er alltaf ad skamma thau, sem er soldid spes, eins og hun se alltaf reid.  Samt eru thau alltaf glod.  A hverjum morgni byrja eg a tvi ad vera med litlu krokkunum i leikjum, spila stundum fyrir thau a ukulele og hjalpa theim ad skrifa stafroid eda teikna thrihyrning!

Eg vildi profa eitthvad annad lika tvi thad var frekar einhaeft ad vera med litlu bornunum fra 8 til 3.  Thannig eg eldadi einn daginn.  Thau elda matinn fyrir alla tharna... veit ekki hvad eru margir en alveg yfir 100 manns.  I svona risapottum med risa sleifum.  Thau hafa alltaf annad hvort hrisgrjon eda "papa" sem er svona svipad og kuskus nema ekkert bragd af tvi, og thad er hvitt. Svo hafa thau annad hvort steikt kal eda pumpkin mauk med. Thad var ahugavert en svona frekar tjillud vinna, konurnar sitjast oft nidur, svo hraera thaer i pottunum af og til, sem tekur reyndar soldid a med svona risapott. 

Svo er eg buin ad profa ad vera i saumaherberginu.  Thar er eg komin goda leid a ad bua til tosku, sem eg aetla svo ad kaupa.  I saumaherberginu getur madur gleymt ser i vinnunni, klippa, festa, sauma osfr. 
Svo i dag kenndi eg nokkrum strakum a ukulele, og kenndi theim lika a tolvu, skrifa a lyklabordid a ensku og svona.  Their skrifa frekar haegt og kunnu ekki retta fingrasetningu.  En theim fannst thetta mjog spennandi.

Ja thannig thad er mikid i gangi tharna, allt fullt af krokkum a ollum aldri ad leika ser eda finna ser eitthvad ad gera.  I thessari viku er buid ad vera svona skolafri thannig thad eru enntha fleyri krakkar og stundum hanga thau bara...   En thad breyttist thegar einn strakur akvad ad fara ad kenna Karate, og gera mig ad adstodarkennara haha.  Thannig sidustu 2 daga, eftir hadegi er buid ad vera fullur salur af krokkum ad laera karate og kickbox. Og allir eru med svona hvit bond vafin um hendurnar, krokkunum finnst thetta mjog spennandi.

Stadurinn sem eg er a, Mariannhill, er svona frekar einangradur.  Thad er ekki mikid haegt ad gera her nema taka einn gongutur kringum hverfid.  Fara kannski i tegardinn hja prestunum eda i hinn gardinn hja nunnunum, nu eda skoda kirkjuna.  Og a hotelinu sem eg er a eru eiginlega bara fullordnir gestir...   Thannig thad er buid ad vera stundum frekar einmannalegt, en um daginn kom reyndar ungur strakur fra Thyskalandi og gisti 2 naetur.  Hann hafdi mikinn ahuga a islenskri tonlist og var i Olafur Arnalds bol haha, og thekkti eiginlega allar hljomsveitir sem eg gat nefnt.  Thad var skemmtilegt ad geta talad vid einhvern um sameiginlegt ahugamal.

En ja, thannig lifid er rolegt, en samt i senn mikid ad gerast i vinnunni. 
Eg held eg verdi ekki her allan timann sem eg aetladi mer, langar ad sja fleyri stadi.  Thannig aetla ad fara til Durban ad sja onnur samtok sem eru vid strondina thar sem er kennt gotubornum a brimbretti og fleyra, og svo er planid ad fara til Mosambique ad hitta vin minn Ben sem er thar i YWAM programmi.      Thannig thad eru spennandi timar framundan.

Saturday, April 2, 2011

Komin til Mariannhill

Eg er komin til Mariannhill!
Thetta blogg verdur bara stutt tvi eg er buin ad vera svo lengi i tolvunni... pantadi flugmida heim, thannig nuna er eina sem eg a eftir ad skipuleggja er hvernig eg kemst fra durban til Joburg adur en eg flyg.  Kannski flug lika, tha tek eg 4 flugvelar heim :)

En her er vodalega rolegt og naes.  Thetta hotel var einu sinni svona eins og elliheimili haha, og thad er einn gamall madur her enn sem a heima her.  Annars er thetta nuna hotel.  Eg er i ser herbergi sem er skemmtilegt en um leid skritid ad vera ad hanga einn.  En held ad eg eignist vini bradum.  Er nu thegar buin ad eignast skemmtilegar nunnu vinkonur og vinkonu fra Thyskalandi. 

Eg er a stad thar sem bua nunnur og prestar i svona convents, svo er kirkja her og eg get sko valid um 3 mismunandi messur a morgun!  Aetla i Zulu messuna sem er fyrir Afriska folkid og thar er vist sungid og dansad og svaka fjor.

Er buin ad fara i samtokin til ad sja, thar voru fullt af bornum.  Litil sem stor, og fullt af konum.  Bornin voru oll ad segja eitthvad vid mig a Zulu sem er tungumalid theirra.  Litlu bornin og sumar konurnar tala ekki ensku, og eg gat ekki svarad theim.  Thannig eg keypti mer how to learn isiZulu bok!  og er nu i strongu nami.  En thad var ahugavert og eg held ad eg eigi eftir ad vera anaegd her.   Er buin ad vera sma einmanna svona fyrst en held ad thad fari svo... thegar eg kynnist ollum betur.  Her er godur matur, og sundlaug uti.   svo var eg ad kaupa mer bok um kall sem for i kringum afriku a hjoli!
For i mollid med nunnunum, thaer eru rosa fyndnar.

En ja, skrifa meira naest.  
Bless bless

Wednesday, March 30, 2011

Swaziland

Hallo! (eg man aldrei eitthvad kul hallo a afrisku sem margir eru bunir ad segja mer)

Mikid buid ad gerast fra tvi eg bloggadi sidast... 
Eg tok Bazbus til Swaziland! 
Eftir sirka 8 tima keyrslu vorum vid komin ad landamaerunum og tilbuin ad komast a hostelid, allir syndu passann sinn og lobbudu i gegn... nema eg!  Ekki vissi eg ad tvi eg var fra Islandi thurfti eg ad fa Visa stimplad a passann minn.   Thannig ad hann sagdi ad hann myndi hleypa mer i gegn en eg thyrfti ad fara i fyrramalid i byggingu i midbaenum og borga visa og thar gaeti eg fundid passann minn...
Thannig eg var allt i einu an vegabrefs og thurfti morguninn eftir ad taka trodfullann minibus i sirka korter, kremd a milli tveggja kalla sem voru ekki thad kurteisir.  En eg lenti svo a svaka naes konu sem syndi mer hvar byggingin var...  vid mer blasti eins og stor blokk sem var enntha ad byggja, 'omalud og erfitt ad komast ad henni.  En eg fann leidina og svo retta herbergid eftir nokkrar spurningar.  Thar thurfti eg ad bida i svona klukkutima rod og eg var eina hvita manneskjan a svaedinu.   En thetta gekk allt vel, eftir ad kallinn hja afgreidslunni kalladi eitthvad til min a afrisku i tridja sinn og eg skildi hann ekki let eg hann bara fa pening og hann henti til baka skiptimyntinni.   Ja thannig sumir Swazibuar eru sem sagt mjog naes og sumir frekar... ja aestir.

En eftir ad eg hafdi nad markmidi dagsins var eg glod.  Uti var steikjandi sol og eg akvad ad fara a vinsaelan utimarkad a svaedinu.  Thad voru mjoog margir markadir og allt konur ad selja.  Eg labbadi a milli svona 15 markada, keypti ymsar gjafir og sitthvad handa mer. Allar konurnar sogdu "I will give you a special price" og sumar voru nanast ad gratbidja mann um ad kaupa eitthvad svo thaer gaetu lifad af.  Thad var frekar erfitt ad segjast bara vera ad skoda thannig eg akvad eftir sma tima ad fara bara a hostelid.

Hostelid sem eg er a er svaka naes, ad undanskyldun sturtunum sem eru litill skitugur klefi med mold a golfinu.  En umhverfid er thad sem er svo heillandi.  Vid erum eins og i midjunni i dali og thad eru tre allt i kring, stor og litil, apar vafrandi um og litill laekur rennur i midjunni a husunum.  Eg sef nuna i svona safari tjaldi med tveim stelpum fra Hollandi sem eru mjog naes. 

Eftir markadinn for eg svo med David sem er fra bandarikjunum i svona "village tour" .  Thad var agaett, sumt af tvi virtist vera svona soldid til ad syna turistum eitthvad en sumt var kul og mjog raunverulegt.  Mjog mikid af bornum tharna sem voru oll veifandi og sogdu "how are you", eina sem thau hofdu laert i ensku til ad segja thegar turistar koma.  Ein stelpan hljop til min og helt i hondina mina flissandi.  Svo smokkudum vid heimagerdan bjor i thorpinu sem var skritinn a bragdid.  En folk lifdi semsagt annad hvort i moldarkofum, halfhusum med mold og fair i venjulegum husum.  Bornin voru oftast a tanum en samt var rusl ut um allar goturnar...  Svo fengum vid okkur ad borda kjot og "papa" med hondunum.

Vid komum soldid seint heim, en svona halftima eftir ad vid komum byrjadi ad HELLI rigna.  Hef aldrei sed svona mikla rigningu, og thad komu svakalegar eldingar og thrumur.  Mig langadi mest ad hlaupa ut i rigninguna en thad var enginn spenntur fyrir tvi thannig eg hugsadi ad thad hefdi verid frekar skritid ad hlaupa ein um.. :)   Stundum hugsa eg ad thad vaeri skemmtilegra ad ferdast med einhverjum skemmtilegum, eins og 2 eda 3 saman.  Tha myndi madur kannski flippa meira.  En thetta er odruvisi, gaman ad profa ad vera ein stundum, held lika ad thegar eg byrja sjalfbodastarfid verdud thad allt odruvisi upplifun.

I dag for eg svo i Riverrafting!  Thad var gaman, nema strakurinn sem sat fyrir aftan mig (vid vorum 2 og 2 saman i bat med arar) var ekkert thad flinkur og var alltaf ad beygja vitlaust... hann datt lika ut i 3 sinnum en eg einu sinni :)  haha, en thetta var fjor og fallegt allt i kring.    For svo i aevintyraleidangur med greyid straknum ut i einhvern skog og vid villtumst og hann var ekki alveg ad fyla thetta.  En mer fannst mjog gaman ad villast.  Hahah ja thad var fint ad fa sma flipp utras, aetla her eftir ad gera bara allt snidugt sem mer dettur i hug, ekki spurja alltaf hvort einhver vilji koma eitthvert med mer.

Jaeja thetta er ordin mjog long faersla.  en a morgun fer eg ur Swaziland og i Sudur Afriku aftur, til Durban. Thar tharf eg ad finna ut hvernig eg kem mer til Jabulani hjalparsamtakanna.

TJA

Sunday, March 27, 2011

Love, peace, happiness

Halo halo!

Jaeja thad er eitthvad skemmtilegt buid ad gerast sidan thad var ekkert ad gera. 
Um kvoldid i gaer kom gestur a hostelid!  Strakur fra bandarikjunum sem heitir Mark. 
Mjog opinn og skemmtilegur, hann var buinn ad ferdast og vera sjalfbodalidi i Sudur afriku sidan i Jan'uar, syndi mer myndir og sagdi mer fra ferdinni.  Eg er svo spennt ad fara ad upplifa svipada, kannski mjog olika, hluti.  En ferdin hans hljomadi mjog skemmtileg og ahugaverd.
Okkur var bent a "vodalega godann" Irskan veitingastad..  thad var annad hvort ad fara a hann eda kentucky (thad er i alvoru ekkert i kringum thetta hostel).  Thannig vid roltum thangad og eg fekk versta mat sem eg hef mogulega smakkad, thurfti ad tyggja kjotid svona 50 sinnum.  Meira ad segja isinn var eins og ryk a bragdid, og eg elska is.   En vid hlogum bara ad thessu...

I dag var vaknad snemma, fengid morgunmat, thad kom stelpa fra London, kvedja Marc og fara i skodunarferd med leidsogumanni sem heitir einmitt Jabulani!  (samtokin sem eg er ad fara ad vinna hja heita Jabulani) en thad thydir happiness, eda be joyful.
Hann Jabu taladi og taladi alla bilferdina.  Eg held i alvoru ad thad hafi ekki lidid 5 sekundna thogn i svona klukkutima, en eg nadi svona helmingnum agaetlega.  Thannig eftir ad hafa fengid ad vita allt mogulegt um thessa skritnu borg forum vid i stort hverfi sem heitir Soweto.  Thar labbadi eg i mjog fataekt hverfi.  Thad var skritid ad sja thad med eigin augum, husin illa gerd og klosettin uti i gardi.  Saet born, og fot hangandi a girdingum.  Thau sogdu ad thad vaeri ekki rafmagn ne rennandi vatn i husunum thannig a kvoldin nota thau kerti og thad er einn vatnskrani uti fyrir mjog langa gotu. 
Thad er skritid ad fara fra thessum stad, keyra sma stund og sja storborgina med ollum storu riku husunum...

En eg for lika a svona uti markad thar sem allir voru ad reyna ad selja mer dot, mjog flott dot, en var tvi midur bara med visa kortid mitt.  Allir voru med serstakt handaband, thrju handtok sem thyda: "Love, Peace, Happiness.  Sem var frekar kul.
En eftir thad for eg a stort safn sem heitir Apartheid museum, og er mjog flott safn um adskilnadastefnuna og Nelson Mandela.  Nuna er eg med allt a hreinu hver hann er :) 

Lenti i sma veseni med visa kortid mitt, sem var frekar vandraedanlegt thegar eg aetladi ad borga tour guidinum minum goda. For i svona 5 hradbanka,  var ordin soldid stressud en nadi svo ad fara a netid, leggja inn a debet kortid mitt og taka ut ur hradbanka.  Fjuff,  thannig eg get borgad fyrir gistinguna mina og haldid afram ferdinni.

Next stop:  Swaziland!