Wednesday, April 27, 2011

Cape Town

Cape Town er kul borg!

Eg er buin ad komast ad tvi ad mer getur fundist skemmtilegt i storborgum (fyrir utan Paris... og Cape Town, finnst mer leidinlegt i storborgum) 
Cape Town er odruvisi borg,  umkringd fjollum sem gerir hana hlylega,  manni lidur ekki eins og madur se i mengunarskyi... og thad er i rauninni aldrei allt of mikid af folki ad labba og allir voda stressadir.. eins og td. i London.   Og tho thad se einn adal vegur, Long Street, tha er thetta eins og morg hverfi og eitthvad skemmtilegt a ollum stodunum... svipad og Paris.
Eg hafdi heyrt ad Cape Town vaeri haettuleg borg, en eftir ad hafa tekid nokkra gongutura finnst mer hun bara mjog hlyleg.  Hun er litrik og er buin ad finna oliklegustu stodum litil kul kaffihus, gamaldags litid biohus, otrulega kul tonlistarbud og fleyra.   Svo er mjog fallegur stor gardur her og i endanum a honum stort listasafn sem eg for a i dag. 
Oll sofnin sem eg er buin ad fara a i ferdinni (sem eru reyndar bara 3) eru buin ad fjalla um adskilnadinn milli svartra og hvita, og hvernig svartir hofdu thad slaemt og hvitir gott. 
Svo labba eg ut og se ad thad er enntha i dag mikill munur a velgengni folks sem fer einfaldlega eftir hudlit manna, sem er svo skritid.  Eg hef aldrei sed hvitann mann betla, eda vera ad vinna vid ad passa bila, eda vera ad vinna vid ad thrifa gotuna eda reyna ad fa folk i litlu mini bussana.  Thad er allt svart folk, thad er eins og thad se omogulegt fyrir hvitt folk her ad lenda i thessum stodum, verst borgudu storfum og vera ad betla.  Lika i fallega stora gardinum ser madur heimilislaust folk sofa a grasinu, og thad er allt svart folk.

Aetli hvita folkid fai meiri sjensa, entha i dag?  Thad hlytur ad vera...  thad tekur greinilega langann langann tima ad breyta hlutum eins og thessum, tvi thad er ekki enntha ordid jafnt rettlaeti milli svartra og hvita.  Eitthvad sem hefur komid mer nokkud a ovart.

En snuum okkur aftur ad skemmtilegu borginni.  Her er eg eiginlega buin ad vera ad dunda mer, er ekki buin ad hafa neitt plan i rauninni.  Vakna a morgnanna og fer ut ad labba.  Labba og labba og se hluti.  Svo finn eg a endanum leidina aftur a hostelid.  I dag labbadi eg einkar mikid, for med fotin min i tvottahreinsun, sa fullt af uti morkudum, keypti mer malverk, for a listasafn, i gardinn, svo sa eg mjog kul fatabud og keypti mer kjol og buxur vij, fyrstu fatakaupin.
I byrjununni a longu labbinu minu kom einn kall ad mer og bad mig um ad kaupa braud handa ser i budinni...  eg hugsadi, hann er fyrsti sem hefur ekki bara bedid um pening heldur hann bad um mat.  Thannig eg gerdi thad.  Svo thegar eg var komin lengra a leid var onnur kona sem bad mig um pening og sagdi mer langa sogu um mommu sina og pabba og um hana og eg trudi henni i alvoru og gaf henni pening... en thad sem er sorglegt er ad madur getur bara ekki verid ad standa i tvi ad gefa ollu thessu folki pening.  Thad komu orugglega 10 fleyri skipti thar sem einhver var ad betla og eg sagdi bara sorry og labbadi i burtu.  Thetta er odruvisi en eg hef kynnst adur, folkid situr ekki og betlar.  Thad labbar upp ad manni og horfir beint i augu manns og segir please kind lady please! og fer ad segja manni ad thad se ekki buid ad borda neitt...    
Og mer finnst thad mjog erfitt... en i leidinni veit eg ekki hvad eg get gert til ad hjalpa theim.  Eg veit ad a morgun verda thau aftur a gotunum ad labba upp ad folki og betla.

Thetta er eitthvad sem eg er buin ad vera ad hugsa mikid um.. og mer finnst thad mjog skritid.   Madur finnur aldrei fyrir thessu a Islandi og eg hef oft hugsad med mer va hvad thad vaeri leidinlegt ad bua a stad thar sem folk vaeri alltaf ad betla.  Madur myndi osjalfratt bara byrja ad ignora thad og finnast thad einfaldlega pirrandi, og tha myndi manni a endanum lida illa yfir tvi utaftvi ad thau eru folk alveg eins og eg..

hmm, eg er ordin threytt.  Aetla ad fara upp i rum ad lesa bokina mina "The boy in the striped pajamas" sem eer mjog god bok!  og fara ad sofa :)    a morgun fer eg i annad hverfi (breyti um hostel, er buin ad vera i midbaenum) sem er svona hippahverfi thar sem margir artistar bua, spennandi!

No comments:

Post a Comment